Tjaldsvæðisreitur - blönduð byggð

Ljósmynd af tjaldstæðisreitnumAkureyrarbær hóf vinnu við heildarendurskoðun deiliskipulags fyrir svokallaðan „Tjaldsvæðisreit“ um mitt ár 2022 til samræmis við stefnu aðalskipulags um uppbyggingu blandaðrar byggðar á svæðinu. Skipulagssvæðið afmarkast af Þórunnarstræti, Hrafnagilsstræti, Byggðavegi og Þingvallastræti.

Ári áður hafði nyrsta hluta skipulagsins verið breytt á þann veg að afmörkuð var lóð fyrir heilsugæslu á svæði sem áður hafði verið nýtt sem bílastæði fyrir bæði hótel og tjaldsvæði. Samhliða þeirri breytingu var aðalskipulagi svæðisins breytt á þann veg að svæðið var skilgreint sem miðsvæði þar sem m.a. megi gera ráð fyrir verslunarstarfsemi, opinberri þjónustu, hótelstarfsemi, heilsugæslu auk íbúðauppbyggingar.

Stefnt er að því að skipulagsáætlunin hljóti vistvottun samkvæmt alþjóðlega vistvottunarkerfinu BREEAM Communities til að tryggja gæði í umhverfis- og skipulagsmálum. Þá er einnig lagt upp með að hafa ítarlegt og gott samstarf við íbúa og aðra hagsmunaaðila á meðan ferlinu stendur enda er um að ræða mikilvægt svæði í hjarta bæjarins.

Drög að skipulagi til kynningar

Í upphafi ársins var farið í ítarlegt samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila um framtíðar skipulag fyrir "Tjaldsvæðisreitinn" og var meðal annars efnt til kynningarfundar 26. janúar 2023 auk þess sem leitað var eftir hugmyndum í gegnum samráðsvettvanginn Okkar Akureyri. Á þessum tíma bárust fjölmargar athugasemdir og ábendingar sem hafa nýst sem hluti af forsendum við útfærslu skipulags fyrir svæðið.

Nú í haust lá fyrir tillaga að útfærslu byggðar á svæðinu og var samþykkt í skipulagsráði að kynna drög að skipulaginu með áberandi hætti áður en lengra yrði haldið. Þann 8. nóvember 2023 var haldinn opinn kynningarfundur í Íþróttahöllinni þar sem skipulagsráðgjafar verkefnisins, Nordic arkitektum, kynntu drög að skipulagi svæðisins. Var fundurinn mjög vel sóttur og komu fram fjölmargar gagnlegar ábendingar og tillögur sem unnið verður með í áframhaldandi þróun reitsins.

Það næsta sem gerist í ferlinu er að unnið verður að því að útbúa drög að deiliskipulagi fyrir svæði, svokallaða vinnslutillögu, sem síðan verður kynnt með formlegum hætti til samræmis við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hvetjum við alla þá sem áhuga hafa á þessu mikilvæga verkefni að kynna sér tillöguna eins og hún var kynnt á fundinum. 

Skipulag Tjaldsvæðisreitar - kynning 8. nóvember 2023

 

Skipulagslýsing

Yfirlitsmynd yfir tjaldstæðisreitinnMeð gerð skipulagsins er lagður grunnur að hagkvæmri nýtingu lands, blöndun byggðar, vistlegum dvalarsvæðum og almenningsrýmum, góðum tengslum við nærliggjandi umhverfi og þar með umhverfi sem styður við virkan lífsstíl. Skipulaginu er ætlað að stuðla að sjálfbæru og umhverfisvænu skipulagi með heildstæðu yfirbragði í sátt við umhverfi og samfélag. Rík áhersla verður á vistvæna nálgun og stefnt að því að skipulagsáætlunin hljóti vistvottun BREEAM Communities.

Lýsinguna má nálgast hér. 

Markmið:

  • Að móta stefnu um uppbyggingu blandaðrar byggðar sem gefur Akureyrarbæ nýja eiginleika og gæði.

  • Að skipuleggja umhverfi þar sem almenningssamgöngur og virkur ferðamáti styður við þétta blandaða byggð þar sem einkabíll er val en ekki nauðsyn.

  • Að móta stefnu í samráði við íbúa Akureyrarbæjar, hagsmunaaðila og viðeigandi stofnanir.

  • Að styrkja og byggja ofan á núverandi gæði svæðisins, s.s. góð sólarskilyrði, útvist og dvalarsvæði, gróðursæld og tengingar við nærliggjandi þjónustu, afþreyingu og almenningsrými.

Megináhersla:

  • Að styrkja tengingar við nærliggjandi græn almenningssvæði, nærliggjandi þjónustu og almenningssamgöngur.

  • Að tryggja framboð á fjölbreyttum íbúðum í blandaðri byggð miðsvæðis í bænum.

  • Staðsetja verslunar- og þjónusturými þar sem þörf er fyrir þau í nálægð við mikilvægar samgöngutengingar og starfsemi.

  • Lifandi og virkar jarðhæðir sem efla og styrkja umhverfið og styðja við mannlíf.

  • Grænt og mannvænt yfirbragð þar sem áhersla er á fjölbreytt mannlíf og vistvænan ferðamáta.

  • Að bílar taki ekki pláss á yfirborði innan svæðisins.

  • Fjölbreytt byggðamynstur og yfirbragð sem tekur mið af nærliggjandi byggð og tekur tillit til ríkjandi vindátta og afstöðu sólar.

  • Byggð með mannlegan skala/mælikvarða.

  • Fjölbreytt og öruggt bæjarrými og dvalarsvæði fyrir ólíka hópa fólks.

  • Að uppbygging og þróun taki tillit til þriggja þátta sjálfbærni; samfélags, efnahags og umhverfis.

  • Að stuðla að hagkvæmri nýtingu lands.

  • Að notast við umhverfisvænar lausnir þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi, bæði á framkvæmdatíma og að honum loknum.

BREEAM vistvottun

Stefnt er að því að skipulagsáætlunin hljóti vistvottun samkvæmt alþjóðlega vistvottunarkerfinu BREEAM Communities. Markmið vottunarinnar er að tryggja gæði í umhverfis- og skipulagsmálum. Til að stuðla að sjálfbæru skipulagi er litið til þriggja meginstoða sjálfbærni við skipulagsvinnuna, samfélags, umhverfis og efnahags. Vottunarkerfið byggir á fjölbreyttum kröfum sem stuðst er við til þess að auka sjálfbærni skipulagsáætlunarinnar, þar með er mikilvægt skref stigið til að skapa aðlaðandi og vel ígrundaða byggð sem hefur þarfir íbúa að leiðarljósi og varðveitir jafnframt einkenni og náttúru skipulagssvæðisins. Í ferlinu er lögð áhersla á samráð. Sjónarmið hagsmunaaðila og nærsamfélagsins eru nýtt til að auka gæði skipulagsins. Vottunin er unnin samhliða skipulagsvinnu og nýtist því sem forsenda við ákvarðanatöku varðandi fyrirkomulag og áform innan svæðisins. Vottunarferlinu er skipt upp í fimm meginflokka sem snerta á helstu atriðum sem styðjast þarf við til að tryggja sjálfbært skipulag:

  • Samráð og stjórnun.
  • Félags- og efnahagsleg velferð.
  • Auðlindir og orka.
  • Landnotkun og vistfræði.
  • Samgöngur og aðgengi.

Fyrir hvern flokk eru settar fram kröfur sem saman tryggja að hugað sé að öllum grundvallaratriðum sem snerta á sjálfbærni skipulagsáætlana. Má þar nefna gerð samráðsáætlunar og þarfagreiningar, kröfur gagnvart efnisvali og förgun efnis, mat á umhverfisáhrifum og greiningu á aðgengi fjölbreyttra ferðamáta. Til að hljóta vottun BREEAM Communities þarf skipulag að uppfylla ákveðnar skyldukröfur (fyrsta stigs vottun) en við fullnaðarvottun deiliskipulags fæst lokaeinkunn í samræmi við þær kröfur sem skipulagið uppfyllir.

Hvernig byggð viltu sjá á tjaldsvæðisreitnum – hugmyndasöfnun

Markmiðið er að búa til gott hverfi í samráði við íbúa og þess vegna er óskað eftir hugmyndum. Þær geta meðal annars snúið að byggingum, samgöngum, opnum svæðum, þjónustu, afþreyingarmöguleikum eða einhverju allt öðru. Gagnlegt getur verið að móta hugmyndir út frá sínu nærumhverfi:

  • Hefur þú skoðun á hvaða íbúðagerðir og búsetuform myndu henta vel á svæðinu?
  • Hvaða þjónustu, innviði eða aðstöðu telur þú að sé þörf á að hafa á svæðinu?
  • Hvað finnst þér vanta í þínu nærumhverfi?
  • Gætir þú hugsað þér að búa á reitnum og komast af án bíls?

Hugmyndum verður safnað í gegnum samráðsvettvanginn Okkar Akureyri frá og með 26. janúar 2023. Allar hugmyndir koma til skoðunar við gerð skipulagsins.

Hvernig nota ég samráðsvettvanginn Okkar Akureyri?

  • Með því að smella á þennan hlekk getur þú skoðað þær hugmyndir sem settar hafa verið fram varðandi nýja hverfið. Allir geta komið sinni hugmynd á framfæri með því að smella á "Bættu við nýrri hugmynd". Við hvetjum fólk til að skrá sig inn í gegnum island.is, Facebook eða búa til nýjan aðgang með netfangi.
  • Hægt er að kjósa hugmyndir upp/niður með því að smella á örvarnar.
  • Hægt er að hefja/taka þátt í umræðum um hugmynd með því að skrifa rök með eða rök á móti.
  • Hægt er að setja inn mynd/myndband máli sínu til stuðnings.

Mynd af merki samráðsvefsins - Okkar Akureyri

Kynningarfundur

Fimmtudaginn 26. janúar 2023 kl. 17.00 verður efnt til kynningarfundar í íþróttahöllinni á Akureyri. Gengið er inn um aðalinngang að sunnanverðu.

Á fundinum munu skipulagshönnuðir kynna fyrirhugaða skipulagsvinnu og í kjölfarið verður boðið upp á þátttöku í umræðuhópum. Við hvetjum alla til að mæta og kynna sér spennandi uppbyggingu til framtíðar. Léttar veitingar í boði.

Síðast uppfært 27. mars 2024