Heiðursviðurkenningar menningarsjóðs 2024

Málsnúmer 2024030852

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3842. fundur - 21.03.2024

Rætt um mögulegar heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs en þær eru veittar einstaklingum sem þykja hafa lagt mikið til menningar- og félagsmála í bænum. Tilkynnt er um viðurkenningarnar á Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs og Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að heiðursviðurkenningum en tilkynnt verður um valið á Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.