Mannréttindaviðurkenning Akureyrarbæjar 2024

Málsnúmer 2024030773

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3842. fundur - 21.03.2024

Umfjöllun um fyrirkomulag veitingar mannréttindaviðurkenningar Akureyrarbæjar 2024.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra mannauðssviðs að auglýsa eftir tilnefningum vegna mannréttindaviðurkenningar Akureyrarbæjar 2024.

Bæjarráð - 3844. fundur - 11.04.2024

Yfirferð tilnefninga til mannréttindaviðurkenningar Akureyrarbæjar 2024.

Birna Eyjólfsdóttir forstöðumaður mannauðsmála sat fundinn undir liðnum.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur hverjir hljóti mannréttindaviðurkenningu Akureyrarbæjar 2024 og felur forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs að sjá um afhendingu viðurkenninganna á Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.